Featured Galleries

Strútsstígur 13.-16. ágúst : Ég fór sem fararstjóri með Útivistarhóp eftir Strútsstígnum 13.-16. ágúst. Veðrið var nokkuð gott allan tímann. Á leið frá Hólaskjóli var haldið meðfram Syðri-Ófæru og skoðuðum fossa og flúðir áður en við óðum ánna. Við komum snemma í Álftavatnaskála og fórum í síðdegisgöngu upp að hraunbrúnni yfir Syðri-Ófæru. Um kvöldið löbbuðum við um svæðið og skoðuðum fleiri fossa. Á öðru degi héldum við suður með Syðri-Ófæru yfir mosavaxið land að Eldgjá þar sem við fengum okkur nesti. Við kvöddum svo Syðri-Ófæru í bili og héldum svo áfram í norðurhlíðum Svartahnúksfjalla þar til við komum aftur niður að Syðri-Ófæru í mynni Ófærudals. Næst héldum við í Hólmsárbotna og fórum í Strútslaug. Eftir gott bað gengum við síðasta spölinn í Strútsskála um Krókagil. Á þriðja degi fórum frá Strútsskála yfir Veðurháls niður í Hrútagil, suður fyrir Mataröldu, Skiptingaröldu og Skiptingaröldu að Slysaöldu. Þar skoðuðum við minnismerki um fjóra menn sem urðu þar úti og virtum fyrir okkur útsýnið áður en við héldum að Móhellunni. Við óðum síðan ár, læki og lænur í Kaldaklofi - sem síðan mynda Kaldaklofskvísl. Við Einstigsfjall fengum við okkur nesti og höfðum útsýni yfir Kaldaklofið. Hópurinn fór að síðustu upp á Hvanngilshnausa og fékk þar fínasta útsýni, rétt áður en fór að rigna. Á fjórða degi var farið í létta morgungöngu á meðan beðið var eftir rútunni. Við skoðuðum Gamlaból og fórum hring í Hvanngilskrók.

Gangan eftir Strútsstígnum var 44,4 kílómetrar, en með göngum við Hvanngil og Álftavötn gekk hópurinn 52,6 kílómetra.

Fleiri myndir:
Arnbjörn
Guðrún
Una

Strútsstígur 13.-16. ágúst

Ég fór sem fararstjóri með Útivistarhóp eftir Strútsstígnum 13.-16. ág ...

Updated: Aug 22, 2009 1:13pm PST

Skjaldbreiður : Ég fór með Útivist á Skjaldbreið 30. ágúst. Þátttakan í ferðinni var framar vonum, 56 göngumenn með tveimur fararstjórum. Sæmundur brást skjótt við og reddaði öðrum bílstjóra þegar ljóst var að ein rúta dygði ekki. Við ókum að gíghólnum Hrauk og gengum þaðan að gíg fjallsins. Það voru 4,6 kílómetrar á tveimur tímum. Við gengum svo austur eftir gígbarminum og fengum flott útsýni yfir Hlöðufellið. Samkvæmt áætlun átti að labba að Hlöðufelli en þar sem ljóst var að önnur rútan kæmist þá leið ekki var ákveðið að halda í norðvestura af fjallnum, niður á veginn aftur. Þar biðum við svolitla stund eftir rútunum.

Við gengum alls 11,9 kílómetra á fimm og hálfum tíma.Hækkunin var 530 metrar.

Skjaldbreiður

Ég fór með Útivist á Skjaldbreið 30. ágúst. Þátttakan í ferðinni var f ...

Updated: Aug 31, 2009 2:46pm PST

Strútsstígur - Skælingar - Sveinstindur : Skundi fór í göngu eftir Strútsstíg og Skælingum 19.-23. júlí 2009. Við hófum göngu við göngubrúnna yfir Kaldaklofskvísl við Hvanngil. Héldum fyrst upp á Hvanngilshnausa og nutum útsýnisins. VIð héldum svo suður fyrir Röðul og yfir í Kaldaklof á milli Sléttafells og Einstigsfjalls. Þar óðum við nokkrar smákvíslar sem mynda Kaldaklofskvísl. Við áttum stutta viðkomu á Slysaöldu og héldum svo yfir Mælifellssandinn og inn í Hrútagil. Þar fórum við yfir Veðurhálsins í Strútsskála. Á mánudegi héldum svo upp Skófluklifina og góndum niður í Krókagil. Við fórum svo niður í Hólmsárbotna í Strútsslaug þar sem við böðuðum okkur. Eftir að hafa snætt nesti héldum við fyrir Laugarháls upp í hlíðar Svartahnúksfjalla í Eldgjá. Þar áðum við við fallegan foss áður en við löbbuðum berfætt í mosanum við Álftavötn. Á þriðjudegi héldum við áfram meðfram Syðri-Ófæru, óðum hana einu sinni. Við dáðumst að fossum og flúðum. Í Hólaskjóli bættist ein í hópinn og héldum við nú að Nyrðri-Ófæru og fylgdum henni inn Eldgjá að Ófærufossi. Næst var haldið í hlíðar Gjátinds, en ekki upp á hann. Deginum lauk svo í skálanum í Stóragili á Skælingum. Á miðvikudegi héldum við inn Stóragil í austurátt. Upp úr gilinu fórum við og héldum að Uxatindum og fórum upp á þann austasta. Þá héldum við inn Jötnagil að Skaftá. Við óðum svo ánna fyrir mynni Hvanngils og fylgdum Skaftá að vatnamælingakofa, en þar var stefnan sett á Sveinstindaskála. Á fimmtudegi héldum upp á Sveinstind og svo niður á veg þar sem við biðum eftir rútunni.

Strútsstígur - Skælingar - Sveinstindur

Skundi fór í göngu eftir Strútsstíg og Skælingum 19.-23. júlí 2009. Vi ...

Updated: Jul 31, 2009 10:44am PST

Strútsstígur 6.-9. ágúst : Átta manna hópur auk fararstjóra hélt af stað úr Reykjavík 6. ágúst. Dagana áður var grenjandi rigning. Þegar í Hólaskjól var komið var ljóst að ekki yrði unnt að vaða Syðri-Ófæru á leið í Álftavötn vegna rigningar. Var því afráðið að láta rútuna skutla hópnum vel áleiðis. Hópurinn fór úr rútunni við hraunbrúnna yfir Syðri-Ófæruna og gekk að Álftavatnaskála. Mikið vatn var í ánni sem flæddi yfir hraunbrúnna. Á öðrum degi var gengið í rigningu frá Álftavatnaskála í Strútsskála. Allar ár á leiðinni voru í ham og þar sem áður var hægt að stikla yfir þurfti að vaða. Hólmsá við Strútslaug var í ham og urðu menn misblautir eftir baráttuna við ánna. Strútsskáli var sem himnaríki og æðislegt að komast úr blautum fötum í hlýum skálanum. Á þriðja degi var haldið frá Strútsskála í Hvanngil. Komið var við á Slysaöldu og svo vaðið yfi ár og læki í Kaldklofi. Í Hvanngili á leið að skálanum var komið við í Gamlabóli, gömlu skýli. Á fjórða degi var farinn hringur í Hvanngilskrók á meðan hópurinn beið eftir rútunni.

Myndir frá Jónasi
Myndir frá Frey og Kristínu
Myndir frá Guðmundi og SIgríði

Strútsstígur 6.-9. ágúst

Átta manna hópur auk fararstjóra hélt af stað úr Reykjavík 6. ágúst. D ...

Updated: Aug 17, 2009 1:41pm PST

Gallery Categories

Utivera

135 galleries with 3485 photos

Updated: Jul 31, 2009 10:44am PST

Horn

19 galleries with 415 photos

Updated: Aug 30, 2008 1:52pm PST

Geocache

6 galleries with 15 photos

Updated: Aug 01, 2007 5:13pm PST

Photography

7 galleries with 45 photos

Updated: Aug 27, 2006 8:07am PST

Flowers

2 galleries with 27 photos

Updated: Aug 02, 2006 5:47pm PST

Animals

2 galleries with 19 photos

Updated: Nov 30, 2007 2:06pm PST

FSA

18 galleries with 375 photos

Updated: Nov 06, 2008 1:21pm PST

Vacation

16 galleries with 323 photos

Updated: Oct 24, 2008 6:00pm PST

Travel

9 galleries with 115 photos

Updated: May 21, 2006 4:27am PST

Sports

4 galleries with 124 photos

Updated: Feb 06, 2010 3:21pm PST

Other

3 galleries with 53 photos

Updated: Mar 17, 2007 3:44am PST

Family

25 galleries with 394 photos

Updated: Dec 26, 2008 9:36am PST

Events

2 galleries with 14 photos

Updated: May 21, 2007 5:06pm PST

Friends & Family


Images on this site Copyright ©2003-2008 Ingvi Stígsson. All rights Reserved.
Images may not be reproduced for personal or commercial use without express written consent.