Skundi Galleries

Strútsstígur - Skælingar - Sveinstindur : Skundi fór í göngu eftir Strútsstíg og Skælingum 19.-23. júlí 2009. Við hófum göngu við göngubrúnna yfir Kaldaklofskvísl við Hvanngil. Héldum fyrst upp á Hvanngilshnausa og nutum útsýnisins. VIð héldum svo suður fyrir Röðul og yfir í Kaldaklof á milli Sléttafells og Einstigsfjalls. Þar óðum við nokkrar smákvíslar sem mynda Kaldaklofskvísl. Við áttum stutta viðkomu á Slysaöldu og héldum svo yfir Mælifellssandinn og inn í Hrútagil. Þar fórum við yfir Veðurhálsins í Strútsskála. Á mánudegi héldum svo upp Skófluklifina og góndum niður í Krókagil. Við fórum svo niður í Hólmsárbotna í Strútsslaug þar sem við böðuðum okkur. Eftir að hafa snætt nesti héldum við fyrir Laugarháls upp í hlíðar Svartahnúksfjalla í Eldgjá. Þar áðum við við fallegan foss áður en við löbbuðum berfætt í mosanum við Álftavötn. Á þriðjudegi héldum við áfram meðfram Syðri-Ófæru, óðum hana einu sinni. Við dáðumst að fossum og flúðum. Í Hólaskjóli bættist ein í hópinn og héldum við nú að Nyrðri-Ófæru og fylgdum henni inn Eldgjá að Ófærufossi. Næst var haldið í hlíðar Gjátinds, en ekki upp á hann. Deginum lauk svo í skálanum í Stóragili á Skælingum. Á miðvikudegi héldum við inn Stóragil í austurátt. Upp úr gilinu fórum við og héldum að Uxatindum og fórum upp á þann austasta. Þá héldum við inn Jötnagil að Skaftá. Við óðum svo ánna fyrir mynni Hvanngils og fylgdum Skaftá að vatnamælingakofa, en þar var stefnan sett á Sveinstindaskála. Á fimmtudegi héldum upp á Sveinstind og svo niður á veg þar sem við biðum eftir rútunni.

Strútsstígur - Skælingar - Sveinstindur

Skundi fór í göngu eftir Strútsstíg og Skælingum 19.-23. júlí ...

Updated: Jul 31, 2009 10:44am PST

Grímannsfell 2009 : Skundi fór á Grímannsfell 9. júlí. Við keyrðum eftir leiðindaslóða að rafmagnslínum rétt við eyðibýlið Bringur. Við gengum fyrst í Helguhvamm og virtum fyrir okkur tóftir Helgusels og Helgufoss.  Við gengum næst upp með Köldukvísl og gengum svo upp Grímarsfellið upp á Stórhól.  Þar fengum við okkur nesti og héldum svo niður Grímmansfellið að eyðibýlinu Bringum, þar sem „Kálgarðurinn var steingerði utanum ekki neitt“ eins og segir í „Túninu heima“ eftir Halldór Laxness.

Við fórum alls 6,2 km á rúmum 3 tímum.

Grímannsfell 2009

Skundi fór á Grímannsfell 9. júlí. Við keyrðum eftir leiðindas ...

Updated: Jul 12, 2009 11:17am PST

Helgafell í Mosfellssveit : Það var 13 manna hópur sem fór upp á Helgafellið fyrsta dag febrúarmánaðar 2009. Veðrið var ágætt, en kalt í vindinum. Við fundum steinsteypusúlu frá Landmælingum og töldum það vera hæsta tind. Við fórum svo smá hring og héldum svo á hólinn með gestabókinni áður en við fórum niður.

Við gengum 4 kílómetra á tæpum tveimur tímum. Leiðina má sjá á Wikiloc

Helgafell í Mosfellssveit

Það var 13 manna hópur sem fór upp á Helgafellið fyrsta dag febr ...

Updated: Feb 01, 2009 2:44pm PST

Reykjafell - Einbúi : Skundi hélt á Reykjafell 25. janúar 2008. Við gengum frá vestri upp á fellið og skoðuðum útsýníð. Næst héldum við á Einbúa og fengum okkur nesti. Eftir að hafa borðað var haldið að Varmá og fylgdum henni til byggða. 

Við gengum 4,8 kílómetra á tæpum tveimur tímum.

Reykjafell - Einbúi

Skundi hélt á Reykjafell 25. janúar 2008. Við gengum frá vestri u ...

Updated: Jan 25, 2009 1:52pm PST

Húsfell með Skunda : Skundi fór sunnudaginn 11. janúar í göngu á Húsfell. Ferðin hófst við vatnsból Hafnfirðinga, Kaldársel. Við tókum smá krók í norðvestur og fórum svo meðfram gamalli garðhleðslu sem þjónaði vatnsveitu Hafnfirðinga líklega milli 1920 og 1950. Við gengum að Níutíumetrahelli, næst Vatnshelli og svo Rauðshelli.  Ekki fórum við inn í hellana en skoðuðum muna þeirra. Það var gert stutt stopp í Valabóli Farfugla. Við fórum þar inn í Músarhelli, skoðuðum aðstæður og kvittuðum í gestabókina. Næst var stefnan sett að Húsfelli yfir Mygludal.  Eftir að hafa skoðað útsýnið, áð og tekið hópmynd héldum við niður af Húsfellinu á línuveg og örkuðum eftir honum þar til við sáum á milli Helgafells og Valahnúka. Gengum svo greitt milli Helgafells og Valahnúka að bílnum við Kaldársel.

Alls gengum við 10,1 kílómeter á þremur og hálfri klukkustund. Upphækkun hefur verið um 250 metrar.

GPS slóðin á WikiLoc

Húsfell með Skunda

Skundi fór sunnudaginn 11. janúar í göngu á Húsfell. Ferðin hó ...

Updated: Jan 11, 2009 1:07pm PST

Hengill: Vörðu-skeggi : Skundi gekk um Hengilsvæðið 9. nóvember. Við lögðum af stað frá bílastæði í Sleggjubeinsdal. Þaðan lá leiðin upp í Sleggjubeinsskarð, þar var frekar hvasst. Úr Sleggjubeinsdal er hægt að fara inn í Innstadal, en við héldum áfram upp á Húsmúla. Þar fengum við útsýni yfir að Vífilsfelli og fjöllum þar í kring. Við héldum svo áfram að hækka okkur rólega í norðu-austur. Á stöku stað þurftum við að þramma yfir snjó. Skyggni var gott þegar við lögðum af stað en þokan lagðist yfir okkur eftir því sem ofar dró. Skyggni var orðið lítið þegar upp á Vörðuskeggja var komið. Eftir að hafa beðið í nokkra stund var ákveðið að halda til baka því skyggni var talið fara versnandi. Við vorum rétt lögð af stað þegar mér var litið við og í því birti yfir Þingvallavatni. Við stöldruðum því við og náðum eins og einni mynd. Við héldum til baka, en fórum niður í Innstadal og yfir Sleggjubeinsskarð niður að Sleggjubeinsdal.

Gangan var 13,6 kílómetrar sem við röltum á tæpum sex klukkustundum.

Hengill: Vörðu-skeggi

Skundi gekk um Hengilsvæðið 9. nóvember. Við lögðum af stað fr ...

Updated: Nov 12, 2008 4:00pm PST

Heiðmörk október 2008 : Skundi gekk um Heiðmörk 12. október. Við héldum frá mótum Helluvatns og Elliðavatns og gengum meðfram Elliðavatni að Þingnesi, þar sem talið er að Kjalarnesþing hafi verið háð og stofnun Alþingis undirbúið. 

Við gengum 10,7 kílómetra á tæpum þremur tímum.

Heiðmörk október 2008

Skundi gekk um Heiðmörk 12. október. Við héldum frá mótum Hellu ...

Updated: Nov 10, 2008 4:04pm PST

Reykjadalur og Grænsdalur : Þann 28. september fór Skundi í göngu í nágrenni Hvergerðis. Við keyrðum í gegnum austur fyrir heiði og í gegnum Hveragerði. Við lögðum bílunum við Varmá og héldum af stað við Rjúpnabrekkur. Leiðin lá eftir slóð inn Reykjadal. Við fórum inn í Klambragil og fórum að fossi innst í gilinu. Við fórum næst upp í Dalaskarð, inn í sæluhús þar og áðum. Til að labba ekki sömu slóð til baka fórum við yfir Dalaskarð í Grænsdal og út hann að bílunum við Rjúpnabrekkur. Ég fylgdi ánni en hópurinn fór upp í hlíðar Dalafells.

Alls voru þetta 10,8 kílómetrar á fjórum klukkustundum.

Reykjadalur og Grænsdalur

Þann 28. september fór Skundi í göngu í nágrenni Hvergerðis. Vi ...

Updated: Nov 07, 2008 5:31pm PST

Skálafell 29. júlí 2008 :

Skálafell 29. júlí 2008

Updated: Jul 30, 2008 5:40pm PST

Blákollur : Skundi fór á Blákoll og Eldborg 3. júní. Við vorum ekki mörg, ekki nema 4. Veðrið hentaði ágætlega fyrir göngu þó það væri skýjað. Eldborgin hefur látið aðeins á sjá, því þar er malarnáma.

Við fórum 7,1 kílómeter á þremur tímum.

Blákollur

Skundi fór á Blákoll og Eldborg 3. júní. Við vorum ekki mörg, e ...

Updated: Jan 17, 2009 1:46pm PST

Sveifluháls - Hrútagjá : Skundi gekk á Sveifluháls og að Hrútagjá laugardaginn 24. maí. Gengið var frá Vigdísarvallavegi í suðaustur upp á Hellutind.  Tja, altént sagði GPS tækið að við værum á Hellutindi. Þaðan löbbuðum við í þokunni yfir á Stapatind. Stöku sinnum rofaði til og var þá hægt að sjá í Kleifarvatn fyrir neðan. Eftir að hafa stoppað aðeins á Stapatindi var tekin skyndiákvörðun um að fara beint niður í Folaldadali og yfir Norðlingaháls. Þegar niður á veg var komið var stefnan sett beint á Hrútagjá og klöngrast yfir hraunið. Hópurinn labbaði svo meðfram Hrútagjá þar sem hún skyndilega endaði. Við tók önnur gjá sem ákveðið var að fara niður í og reyndist það vera príl og smá vesen. Hópurinn dreif sig upp úr gjánni og setti stefnuna á hrauntröð sem liggur í hrauninu. Við löbbuðum eftir botni hrauntraðarinnar þar til við vorum komin út úr hrauninu. Þá löbbuðum við eftir gömlum stíg suður fyrir Sandfell og svo eftir veginum að bílnum.

Alls voru þetta 10,4 kílómetrar á fjórum og hálfum klukkutíma.

Sveifluháls - Hrútagjá

Skundi gekk á Sveifluháls og að Hrútagjá laugardaginn 24. maí. G ...

Updated: May 25, 2008 6:07pm PST

Stóri og Litli Meitill : Skundi hélt á Stóra og Litla Meitil laugardaginn 17. maí. Þangað hafði ég farið áður með Útivistarræktinni. Það var þoka og ekkert útsýni. Rigning hamlaði jafnframt myndatöku. Við héldum fyrst á Stóra-Meitil. Við sáum ekkert niður gíginn og stoppuðum stutt. Við héldum næst milli meitla í rigningu og þoku. Þegar upp á Litla-Meitil var komið settist hópurinn niður og tók sér smá kaffipásu. Eftir kaffið fórum við að feta okkur niður eftir Meitilstagli. Við komum á Votaberg sem er ekki heppilegt til niðurgöngu, en við fundum okkur sleið niður á jafnsléttu rétt hjá berginu og héldum að bílunum. 

Alls gengum við 9,1 kílómetir á þremur tímum og tuttugu mínútum.

Stóri og Litli Meitill

Skundi hélt á Stóra og Litla Meitil laugardaginn 17. maí. Þangað ...

Updated: May 17, 2008 1:12pm PST

Eyjafjallajökull : Eyjafjallajökull var genginn 26. apríl af Skunda. Við lögðum af stað úr bænum upp úr sjö að morgni og keyrðum á Selfoss. Þar hitti okkur fararstjórinn, Smári Stefánsson, og var hann með búnað með sér. Línu, belti, brodda og ísexi. Við héldum svo áfram að Seljavallalaug þar sem gangan hófst. Við byrjuðum að ganga rétt fyrir 10. Eftir að hafa gengið tæpa þrjá klukkutíma eða 4,3 kílómetra fórum við í línu. Auðveldlega gekk að labba í snjónum. Við gengum svo 3,5 kílómetra í snjónum upp á Hámund á þremur og hálfum klukkutíma, við vorum sem sagt sex klukkustundir og átján mínútur á leiðinni upp. Á leiðinni upp fann fararstjórinn sprungu sem þurfti að klofa yfir. Á Hámundi fengum við okkur að borða í þoku og litlu útsýni. Við héldum svo á Guðnastein í byl og snjókomu. Á leiðinni milli tinda þurftum við að klofa yfir sprungu og lenti Álfhildur í smá vandræðum þegar bakinn brast undan henni - en hún lenti í fanginu á Pierre. Eftir að hafa staðið á Guðnasteini í hríðarbyl í smá stundu hófum við gönguna niður. Alls voru það 7,6 kílómetrar á tveimur klukkustundum og fjörtíu mínútum. Leiðin niður í snjónum var eilítið leiðinleg því snjóbráð var nokkur og við sukkum í snjóinn. 

Alls gengum við 15,9 kílómetra á tæpum 10 klukkustundum.

Eyjafjallajökull

Eyjafjallajökull var genginn 26. apríl af Skunda. Við lögðum af s ...

Updated: Apr 30, 2008 4:40pm PST

Esja 17. apríl 2008 : Skundi fór upp að Steini í Esju 17. apríl - tvisvar. Hækkun samtals 1.200. Göngulengd 11,1 kílómetri á fjórum klukkustundum og þremur korterum. Myndirnar voru teknar á farsíma og sendar jafnóðum inn.

Esja 17. apríl 2008

Skundi fór upp að Steini í Esju 17. apríl - tvisvar. Hækkun samta ...

Updated: May 10, 2008 11:46am PST

Esja 11. apríl 2008 : Skundi fór upp að steini í Esju 11. apríl. Vorum við 5 sem fórum í gönguna. Það var fínasta veður og áættt að labba upp Esjuna.

Esja 11. apríl 2008

Skundi fór upp að steini í Esju 11. apríl. Vorum við 5 sem fórum ...

Updated: Apr 13, 2008 4:17pm PST

Esja 28. mars : Skundi fór á Esju 28. mars. Veðrið var fínt og við reyndum að spæna upp hlíðina. Þetta voru 5,6 kílómetrar á tveimur tímum.

Esja 28. mars

Skundi fór á Esju 28. mars. Veðrið var fínt og við reyndum að s ...

Updated: Apr 09, 2008 3:57pm PST

Esja 15. mars 2008 : Skundi hélt á Esju 15. mars. Veðrið var mjög flott og gott útsýni á upp og niðurleið. Það var mikil umferð upp og niður fjallið og góðir stígar í snjónum. 

Hópurinn labbaði upp að steini og niður aftur, 6,5 kílómetra á þremur klukkustundum.

Esja 15. mars 2008

Skundi hélt á Esju 15. mars. Veðrið var mjög flott og gott útsý ...

Updated: Mar 21, 2008 12:24pm PST

Esja febrúar 2008 : Á öðrum degi febrúar 2008 ákvað Skundi að æða upp að Steininum við Þverfellshorn á Esju. Það átti að vera kalt í veðri en menn ætluðu ekki að láta það á sig fá. Vindur átti að vera lítill og gott skyggni. Þegar á reyndi var töluverður vindur og sumir lendu í erfiðleikum með að standa í lappirnar. Þegar við vorum hálfnuð upp var ákveðið að nú væri komið nóg - allir búnir að prófa búnaðinn og ágætis innkaupalisti tilbúinn í huganum. Lambúshetta og vindheldari buxur hjá mér. 

Við vorum fimm sem fórum upp og löbbuðum þrjá og hálfan kílómetra á einni og hálfri klukkustund.

Esja febrúar 2008

Á öðrum degi febrúar 2008 ákvað Skundi að æða upp að Steinin ...

Updated: Feb 02, 2008 10:44am PST

Hverahlíð : Skundi fór sunnudaginn 20. janúar í gönguferð á Hellisheiði. Stefnan var sett á Skálafell. Það var mikil blíða, frost en engin ský á lofti. Smá vindur í upphafi. Ferðin sóttist seint, því það var mikill snjór sem var mjúkur. Við sukkum því í snjóinn og nokkrum sinnum upp í klof. Þegar upp Hverahlíðina var komið tókum við stöðuna. Við höfðum verið tvo og hálfan tíma 2 kílómetra og töldum hyggilegast að halda til baka. Við örkuðum til baka, stoppuðum hjá einni af holu Orkuveitunnar og fengum okkur nesti. Bakaleiðin gekk vel framan af, við fórum í slóðinni sem við höfðum þegar troðið. Slóðinn hvarf svo, því skafið hafði í hana,  svo við þurftum að troða okkur leið í snjónum.

Alls voru þetta fjórir kílómetrar sem við klofuðum í snjónum á fjórum klukkustundum.

Hverahlíð

Skundi fór sunnudaginn 20. janúar í gönguferð á Hellisheiði. St ...

Updated: Jan 20, 2008 3:43pm PST

Heiðmörk : Skundi fór og gekk í Heiðmörk fullveldisdaginn 1. desember. Veðrið var fínt og gott  til göngu. Gangan hófst á nesinu milli Helluvatns og Elliðavatns. Við gerðum stutt stopp í Elliðavatnsbænum og skoðuðum jólamarkað Skógræktarfélagsins.  Svo var skundað út Þingnes, en þar var Kjalarnesþing háð um tíma og stofnun Alþingis 930 líklega undirbúin.  Við gengum eftir göngustígum að Vígsluvöllum, en þar vígði Gunnar Thoroddsen útivistarsvæðið í Heiðmörk 1950. Undanfari er lundur þar sem fyrstu trén voru gróðursett 1949. Svo var farið framhjá Gvendarbrunnum, vatnsbóli Reykvíkinga, að bílastæðinu. Að göngu lokinni  komum við aftur við í Elliðavatnsbænum og fengum okkur heitt súkkulaði og vöfflur.

Við gengum 8,6 kílómetra á tveimur og hálfum tíma.

Heiðmörk

Skundi fór og gekk í Heiðmörk fullveldisdaginn 1. desember. Veðri ...

Updated: Dec 01, 2007 11:12am PST

Selvatn : Skundi fór og gekk að Selvatni 17. nóvember. Hópurinn hittist við Select á Vesturlandsveginum og keyrði að Nátthagavatni. Þaðan var labbað að Selvatni og umhverfið skoðað. Við fórum svo yfir að sumarhúsinu Álfhóli og löbbuðum þaðan að fossum í á sem rennur í Nátthagavatn. Veðrið var indælt til göngu.  Smá fönn var yfir jörðu en ekkert sem tafði eða hamlaði för okkar.

Við gengum 6,4 km. á tveimur klukkustundum.

Selvatn

Skundi fór og gekk að Selvatni 17. nóvember. Hópurinn hittist við ...

Updated: Nov 18, 2007 2:14pm PST

Þverfellshorn september : Skundi fór 11. september upp á Þverfellshorn. Markmiðið var að vera á betri tíma en síðast, þ.e. undir fimm klukkustundum. Við vorum klukkustund upp að Steini og héldum svo áfram beint upp og létum smá klifur ekkert á okkur fá. Við vorum alls rétt tæplega þrjár klukkustundir upp og niður og vorum nokkuð ánægð með okkur þó harðjaxlar hlupu fram úr okkur á leið upp og niður.

Þverfellshorn september

Skundi fór 11. september upp á Þverfellshorn. Markmiðið var að v ...

Updated: Sep 11, 2007 4:48pm PST

Úlfarsfell : Skundi hafði ætlað sér á Skálafell sunnan Hellisheiðar 4. september. Hópurinn kom saman við Select stöðina við Vesturlandsveg og ræddi þar skýjafar og afréð að halda upp á Úlfarsfell í staðinn. Það var rok en engin rigning, en skyggni lélegt.

Gönguleiðin var 5 kílómetrar og var gengin á einum og hálfum tíma.

Úlfarsfell

Skundi hafði ætlað sér á Skálafell sunnan Hellisheiðar 4. septe ...

Updated: Sep 05, 2007 8:42am PST

Tröllafoss - Þríhnúkar - Haukafjöll - könnunarleiðangur : Útsendarar Nefndarinnar fóru og skoðuðu gönguleiðir í nágrenni Tröllafoss 25. ágúst. Þrammað var upp á Þríhnúka og Haukafjöll. Mikið var um bláber og var eitthvað skilið eftir fyrir aðra.

Það voru gengnir 8,4 kílómetrar á tæpum fimm klukkustundum.

Tröllafoss - Þríhnúkar - Haukafjöll - könnunarleiðangur

Útsendarar Nefndarinnar fóru og skoðuðu gönguleiðir í nágrenni ...

Updated: Sep 04, 2007 4:31pm PST

Straumsvík : Gönguklúbburinn nafnlausi fór og labbaði Straumsvík þriðjudaginn 21. ágúst. Fylgt var að mestu leið sem undanfararnir fóru vikuna áður. Þ.e. lagt var af stað frá Straumi og labbað að Þýskubúð. Stefnan sett á Jónsbúð og labbað framhjá Eyðikoti. Næst var labbað eftir Langabakka og framhjá Óttarstaðabæjunum. Stefnan var sett á hlaðnar tóftir Norðurfjárhúsa og þaðan að tóftarbrotum Lónakots. Næst var haldið í suður, yfir Reykjanesbraut og gamla Keflavíkurveginn að Óttarsstaðaborg, hringlaga hlaðinni fjárborg úr hraunhellum, stundum nefnd Kristrúnarborg - eftir Kristrúnu bónda á Óttarsstöðum sem hlóð borgina um 1870. Þar var áð og rætt um nöfn á klúbbinn og nafnið SKUNDI  valið. Þá löbbuðum við að Smalaskálakeri sem er jarðfall og virtum fyrir okkur rústir Slunkaríkis, kofi sem reistur var 1974 af Hreini Friðfinnssyni. Undanfararnir höfðu ekki fundið Gvendarbrunn svo um leið og inn á Alfaraleið var komið var farið að svipast um eftir veglegum brunni - helst í kringum vörðurnar. Það var svo fyrir einstaka heppni að við fundum smápoll sem við sannfærðum okkur um að væri Gvendarbrunnur. Við héldum svo að Straumi aftur.

Gönguleiðin var tæpir 10 kílómetrar og gengum við hana á fjórum klukkustundum. Miklar tafir voru vegna krækiberja framan af, en eftir að yfir Reykjanesbrautina var komið tóku við bláber í miklu magni.

Straumsvík

Gönguklúbburinn nafnlausi fór og labbaði Straumsvík þriðjudagin ...

Updated: Aug 21, 2007 6:01pm PST

Straumsvík - könnunarleiðangur : Nefndin sendi útsendara sína til að kanna gönguleið í Straumsvík. Farið var 17. ágúst á föstudagskvöldi. Veðrið var hreint frábært. Leiðin lá í stórann hring. Lagt var af stað frá Straumi. Labbað framhjá Þýskubúð, Jónsbúð og Eyðikoti. Svo labbað eftir Langabakka og framhjá Óttarstaðabæjunum. Stefnan var sett  á hlaðnar tóftir Norðurfjárhúsa og þaðan að tóftarbrotum Lónakots. Næst var haldið í suður, yfir Reykjanesbraut að Óttarsstaðaborg, hringlaga hlaðin fjárborg úr hraunhellum. Við skoðuðum jarðfall mikið sem heitir Smalaskálaker og fór svo inn á Alfaraleiðina. Af henni fórum svo norður að Straumi.

Göngulengd var 9,4 kílómetrar og fórum við þá þremur og hálfri klukkustund.

Straumsvík - könnunarleiðangur

Nefndin sendi útsendara sína til að kanna gönguleið í Straumsví ...

Updated: Aug 18, 2007 8:38am PST

Flatafell í Grímannsfelli : Gönguklúbburinn fór upp á Flatafell 7. ágúst. Var þetta fimmta ferðin klúbbsins. Ferðin gekk vel við fórum leið sem búið var að stika út. Veðrið var gott til göngu, en ekki jafngott til myndatöku. Eftir eru tveir tindar á Grímannsfellinu, Stórhóll og Hjálmur (eða Kollhóll). Grímannsfellið, sem Ari Trausti segir að sé "lúið fjall", var því ekki sigrað alveg í þessari ferð. Við vorum níu að þessu sinni.

Við löbbuðum 5,2 kílómetra á rúmum tveimur tímum. Hækkunin var um 350 metrar.

Flatafell í Grímannsfelli

Gönguklúbburinn fór upp á Flatafell 7. ágúst. Var þetta fimmta ...

Updated: Aug 07, 2007 3:58pm PST

Helgafell í Hafnarfirði : Gönguklúbburinn nafnlausi fór í sína fjórðu ferð upp á Helgafell í Hafnarfirði 31. júlí. Áður var búið að fara upp á Vífilsfell og Keili en ég missti af því. Við fórum nokkuð hefðbundna leið upp á Helgafellið. Þegar þangað var komið vildum við endilega finna "Gatið" og fundum það eftir nokkra leit. Við fórum svo niður í gegnum gatið og héldum til baka austur eftir fjallinu og svo norður fyrir. Á leiðinu niður frá gatinu fórum við í berjamó og átum allt sem við tíndum. Ljósmyndakall hópsins er "Skundi"

Gangan var 7,1 kílómetri og tók okkur tvær og hálfa klukkustund. Hækkunin var 250 metrar. Veðrið var mjög gott til göngu og áður boðuð rigning lét ekki sjá sig.

Helgafell í Hafnarfirði

Gönguklúbburinn nafnlausi fór í sína fjórðu ferð upp á Helgaf ...

Updated: Aug 02, 2007 9:47am PST

Þverfellshorn : Gönguklúbburinn nafnlausi hélt stofnfund sinn á Þverfellshorni þriðjudaginn 11. júlí. Það tóku 22 þátt í göngunni. Alls voru labbaðir 7,5 kílómetrar á 5 klukkustundum. Þar af voru 4 kílómetrar upp á 3 klukkustundum, hækkunin var 730 metrar. Við fórum styttri og brattari leiðina niður og vorum fljótari. Veðrið var rosalega flott og við vorum ekkert að flýta okkur. Upp á horninu var dreift lista yfir mögulega tinda til að spreyta sig á og ákveðið að fara á Vífilsfell næsta þriðjudag.  Þar þarf að ákveða nafn á félagsskapinn. Markmiðið er svo að fara á Eyjafjallajökul eða Hvannadalshnjúk. Mottó klúbbsins er "Betri er stafur í rass en auga".

Þverfellshorn

Gönguklúbburinn nafnlausi hélt stofnfund sinn á Þverfellshorni þ ...

Updated: Aug 02, 2007 7:08am PST


Images on this site Copyright ©2003-2008 Ingvi Stígsson. All rights Reserved.
Images may not be reproduced for personal or commercial use without express written consent.