Ingólfur Eyjólfsson og Elín Salína Sigfúsdóttir.
Ingólfur var fæddur í Fagraneskoti í Aðaldal, S-Þing. 8. október 1876 og látinn 4. september 1938. Bóndi í Fagradal á Fjöllum, N-Þing., Þorbrandsstöðum og víðar í Vopnafirði. Bóndi á Skjalþingsstöðum, Hofssókn, N-Múl. 1930.
Heimildir: 1910, Samt.31, Austf.5953/12066, Æ.Þing.I, Lögr.26, 1930, Mbl.21/07/2004
Elín var fædd á Einarsstöðum í Vopnafirði 10. nóvember 1889 og látin 26. júlí 1934. Húsfreyja á Skjalþingsstöðum, Hofssókn, N-Múl. 1930. Húsfreyja í Fagradal á Fjöllum, S-Þing., Þorbrandsstöðum og víðar í Vopnafirði.
Heimildir: 1910, 1930, Samt.31, Austf.12066, Æ.Þing.I, Lögr.26, Laxd.74, Mbl.21/07/2004