El Senado de España
Á morgni þriðjudags gengum við frá hótelinu að Senadinu, El Senado de España. Við tókum okkur klukkutíma í labbið og höfðum nægan tíma að virða fyrir okkur konungshöllina, Palacio Real de Madrid, sem stendur við Plaze de Oriente. Við stilltum okkur upp til myndatöku fyrir utan Senadið á meðan við biðum eftir leiðsögumanni og túlki. Síðan var gengið um húsið, heimsóttum bæði gamla og nýja salinn á meðan leiðsögumaðurinn flutti okkur ýmsan fróðleik um Senadið og tengsl þess við Congressið, Congreso de los Diputados. Að heimsókn lokinni röltum við nokkur á Plaza Mayor og fengum okkur að snæða þar.
Read More