Tapas-ganga
Á þriðjudagskvöldi efndi Skundi til Tapas göngu um Madríd. Við gengum um 5-6 kílómetra. Gangan hófst við Plaza de Santa Ana, þar átti að fara á Þýsku bjórstofuna - Cerveceria Alemana, en hún var lokuð. Við fundum okkur annan stað og settumst þar 30 saman. Næst fórum við að Húsinu hans afa - La Casa del Abuelo, það er lítill og settlegur staður og rúmar alls ekki 30 manns. Við gengum því áfram. Við stoppuðum næst á Taberna de Antonio Sanchez, mjög sérstakt andrúmsloft þar. Við reyndum við Casa Labra og vorum komin inn og hugðumst kaupa bjór - en það gekk nema kaupa mat með, svo við fórum. Hópurinn tvístraðist á næstu stöðum, nokkirir urðu eftir á Kommúnistanum - El Comunista, aðrir á Elsku Carmen - Carmencita og restin leitaði að Köttunum - Los Gatos en létu sér nægja nálægan stað.
Read More