Messa Aðalvík 2010
Átthagafélag Sléttuhrepps á Ísafirði og í Reykjavík stóðu fyrir messuferð í Staðarkirkju í Aðalvík 17. apríl 2010. Var margmenni í messunni, 129 skrifuðu sig í gestabókina í prestsetrinu. Séra Agnes M. Sigurðardóttir prestur í Bolungarvík messaði og henni til aðstoðar var séra Hulda Hrönn Helgadóttir prestur í Hrísey. Að lokinni messu fóru kirkjugestir í prestsetrið þar sem boðið var upp á kaffi og kökur. Um kvöldið var brenna í fjörunni við skólann og ball í skólanum á eftir.
Read More