Gengið um Hornbjarg
Laugardaginn 16. ágúst fórum við í stuttan göngutúr. Við gengum frá Stígshúsi upp í Ystadal og út á Horn. Þar stoppuðum við um stund, sumir lögðu sig í kyrrðinni, aðrir gægðust út yfir bjargbrúnina. Við héldum svo áfram eftir Hornbjargi og upp á Miðfell - alveg út á út á fellið, þar sem við fengum óvænt GSM samband. Við héldum svo niður í Miðdal og löbbuðum undir Jörund og að Miðdalsvatni, en þar voru álftir á ferð. Næst var ferðinni heitið á Múlann og á leið niður tíndum við krækiber og bláber. Erna safnaði líka káli og grösum fyrir kvöldmatinn.
Við gengum alls 8,1 kílómeter á fimm og hálfum tíma. Heildarhækkun var um 450 metrar.
Read MoreVið gengum alls 8,1 kílómeter á fimm og hálfum tíma. Heildarhækkun var um 450 metrar.