Norðurfjörður - Skjaldbjarnarvík - Reykjarfjörður
Skundi fór í sína fyrstu langferð í ágúst. Á fyrsta degi var siglt frá Norðurfirði í Skjaldbjarnavík og labbað þaðan yfir í Reykjarfjörð. Við komum komum við hjá gröf Hallvarðs Hallssonar, gengum upp á Geirhólma eða Geirólfsnúp. Fórum svo niður í Sigluvík og sáu sum okkar ref í rekanum. Héldum svo áfram að Reykjarfjarðarós og óðum hann. Var svolítill straumur í ánni, en fyrst og fremst var hún köld. Við gistum í gamla bænum í Reykjarfirði sem Ragnar og Sjöfn sjá um. Fórum í sund í sundlauginni - sem er æðisleg. Vel viðhaldin sundlaug með sæmilega heitu vatni. Um kvöldið var soðinn lax í kvöldmatinn, smá ganga niður í fjöri og meiri afslöppun í sundlauginni.
Skjaldbjarnarvík - Reykjarfjörður
Göngulengd: 14,4 km. Tími: 6:21 Meðalhraði: 2,3 km/klst. Mesta hækkun: 470 metrar
Read MoreSkjaldbjarnarvík - Reykjarfjörður
Göngulengd: 14,4 km. Tími: 6:21 Meðalhraði: 2,3 km/klst. Mesta hækkun: 470 metrar