Flæðareyri - Álfsstaðir
Á öðrum degi var haldið af stað frá Flæðareyri og haldið inn Leirufjörð. Þegar komið var inn fyrir Dynjanda var haldið út á leirurnar í Leirufirði. Þegar yfir var komið var haldið yfir Kjósarnes og þá inn Hrafnfjörð. Hópurinn stoppaði við gröf Fjalla-Eyvindar Jónssonar á Hrafnfjarðareyri. Við tókum svo ákvörðun um að halda að Álfsstöðum. Við gerðum því stutt stopp hjá neyðarskýlinu og tjaldstæðinu í Hrafnfirði og héldum svo áfram. Skorará þurftum við að vaða. Rétt við Álfsstaði fundum við ágætis tjaldstæði sem við nýttum.
Read More