1. dagur: Hesteyri - Látrar
Gengið frá Hesteyri yfir að Látrum, upp á Straumnesfjall, í Fjótavík, Hlöðuvík og Hornvík. Ferðin hófst með siglingu á Hesteyri. Þaðan gengum við upp Hesteyrardal í Hesteyrarskarð. Þar ert tekin skörp beygja og haldið eftir göngustíg norðan við Búrfell og niður í Miðvík. Við reyndum að finna tóttirnar af Neðri-Miðvík, en þær hafa væntanlega verið huldar hvönn. Þá gengum við fyrir Kleif/Mannfjall og fundum ís undir sandinum. Óðum svo yfir Stakkadalsós og héldum að Látrum þar sem við slógum upp tjöldum.
Read More