Keilir
Fór með Viggó og félaga hans á Keili 5. júlí. Ætluðum fyrst á Esju en fannst full skýjað þar. Ágætis kvöldganga, hefðum mátt fara fyrr af stað. Gott gönguveður. Saabinn hans Viggó laskaðist þó eitthvað á malarveginum. Þetta var þriðja gangan á Keili á árinu, síðast fór ég í morgungöngu með Ferðafélagi Íslands. Ég notaði tækifærið og stillti hæðarmælinn á GPS tækinu - það fóru 10 metrar af! Í þetta sinn gekk mun betur að ganga á Keili og greinilega eitthvað meira þol í skrokknum nú - en veðrið var reyndar miklu betra og hjálpaði það til.
Við gengum 7,8 kílómetra á tveimur og hálfri klukkustund. Hækkun um 250 metrar.
Read More