gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivera
  2. Eigid rap

Vífilsfell - Maríuhellir

Ég mætti galvaskur við skrifstofu Ferðafélags Íslands 9. júní rétt fyrir 10. FÍ hafði auglýst á vefnum sínum ferð að Glym og á Hvalfell í Hvalfirði. Þegar á reyndi mætti enginn fararstjóri og skrifstofan var harðlæst og enginn miði um að ferðin hefði verið felld niður. Við vorum nokkur sem ákváðum að úr því við værum nú búin að smyrja nesti þá kæmi ekki til greina að fara og borða það þar. Við settum stefnuna á Vífilsfell og paufuðumst þar upp. Við vorum 5 og kom það sér vel að ég var nýbúinn að fara í morgungöngu með Ferðafélaginu. Við hjálpuðumst öll að finna næstu stikur í þokunni. Við fundum okkur ágætis skjól í smá laut í klettunum og fengum okkur nesti þar. Þar kom ein úr hópnum með fullan poka af Freyju draum og bauð okkur hinum. Að lokinni göngunni settum við stefnuna á Heiðmörk og brugðum okkur í Maríuhelli. Gangan upp á Vífilsfell var 4,8 kílómetrar og tók okkur tæplega þrjá og hálfa klukkustund. GPS tækið sagðist hafa verið mest í 673 metrum, en ég held að það séu ýkjur eða óskhyggja upp á einhverja tugi metra. En hækkunin hefur verið rúmlega 400 metrar.
Read More
  • Leiðin samkvæmt GPS tækinu

    Leiðin samkvæmt GPS tækinu

  • Hæðarferilinn skv. GPS tækinu.

    Hæðarferilinn skv. GPS tækinu.

  • Smá hvíld í miðri hlíð

    Smá hvíld í miðri hlíð

  • Untitled photo
  • Framundan er ... ehh ... Vífilsfell vonandi

    Framundan er ... ehh ... Vífilsfell vonandi

  • Álfhildur smellir af í þokunni og norsku mæðgurnar fylgjast með

    Álfhildur smellir af í þokunni og norsku mæðgurnar fylgjast með

  • Untitled photo
  • Tröllkarl?

    Tröllkarl?

  • Jújú, þetta er ekkert mál

    Jújú, þetta er ekkert mál

  • Brugðið á leik fyrir myndavélarnar

    Brugðið á leik fyrir myndavélarnar

  • Klifrið hættulega myndað

    Klifrið hættulega myndað

  • Untitled photo
  • Álfhildur dregur sig upp

    Álfhildur dregur sig upp

  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Kaffipása

    Kaffipása

  • Allir á niðurleið

    Allir á niðurleið

  • Bátur?

    Bátur?

  • Untitled photo
  • Malarnám

    Malarnám

  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2022 SmugMug, Inc.
    Bátur?
    DSC_0038 036_edited-1.jpg
    Malarnám