Kóngsvegurinn (K5)
Laugarvatn - Úthlíð
Útivist hélt áfram með Kóngsveginn. Sunnudaginn 29. apríl var farið frá Laugarvatni að Úthlíð. Kóngsvegurinn er nokkuð greinilegur á köflum. Niðurgrafinn og fullur af drullu. Drullan hafði þó þornað nokkuð undanfarna daga og gekk bara vel að ganga. Við þurftum að vaða til að komast yfir á og blotnaði ég smávegis. Við tók stefnu full langt í norður og þurftum að ganga aðeins suður með Brúará áður en við komum að Brúarfoss. Við Brúarfoss er brú þar sem áður var steinbogi. Brú var byggð 1901 og er steinhleðslan úr þeirri brú enn til staðar. Sagan segir að kona Skálholtsbiskups hafi látið brjóta steinbogann árið 1602 til að hefta för umrenninga að Skálholti. Stuttu eftir brúnna þurftum við að fara yfir annað vað og gekk það betur þó lengra væri. Við gegnum svo að kirkjunni í Úthlíð þar sem Sæmundur náði í okkur. Í fyrstu var áætlað að leiðarlok yrðu í Miðhúsum en fararstjórinn ákvað að láta eftir okkur að fara að Úthlíð.
Ég var með Nikon vélina mína nýju. Hún var kolvitlaust stillt, sett á 1600 ISO í upphafi, eftir æfingar við Sólfarið kvöldið áður.
Vegalengd 12 km. Göngutími 4 og 1/2 klst. Mesta hækkun var 50 m. Er ég nú búinn að arka 126 km. með Útivist á árinu og hef verið 44 klst. að.
Fararstjóri Sigurður Jóhannsson.
Read More