gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivera
  2. Skundi

Húsfell með Skunda

Skundi fór sunnudaginn 11. janúar í göngu á Húsfell. Ferðin hófst við vatnsból Hafnfirðinga, Kaldársel. Við tókum smá krók í norðvestur og fórum svo meðfram gamalli garðhleðslu sem þjónaði vatnsveitu Hafnfirðinga líklega milli 1920 og 1950. Við gengum að Níutíumetrahelli, næst Vatnshelli og svo Rauðshelli. Ekki fórum við inn í hellana en skoðuðum muna þeirra. Það var gert stutt stopp í Valabóli Farfugla. Við fórum þar inn í Músarhelli, skoðuðum aðstæður og kvittuðum í gestabókina. Næst var stefnan sett að Húsfelli yfir Mygludal. Eftir að hafa skoðað útsýnið, áð og tekið hópmynd héldum við niður af Húsfellinu á línuveg og örkuðum eftir honum þar til við sáum á milli Helgafells og Valahnúka. Gengum svo greitt milli Helgafells og Valahnúka að bílnum við Kaldársel. Alls gengum við 10,1 kílómeter á þremur og hálfri klukkustund. Upphækkun hefur verið um 250 metrar. GPS slóðin á WikiLoc
Read More
  • Sigurlín, Ragnheiður og Þorbjörg kvitta í gestabókina í Músarhelli í Valabóli.

    Sigurlín, Ragnheiður og Þorbjörg kvitta í gestabókina í Músarhelli í Valabóli.

  • Ragnheiður í Valabóli

    Ragnheiður í Valabóli

  • Húsfellið framundan

    Húsfellið framundan

  • Valaból

    Valaból

  • Húsfell

    Húsfell

  • Helgafell og Valahnúkar

    Helgafell og Valahnúkar

  • Rétt áður en haldið er á Húsfellið

    Rétt áður en haldið er á Húsfellið

  • Þorbjörg, Ásta Kristín og Erna virða fyrir sér útsýnið

    Þorbjörg, Ásta Kristín og Erna virða fyrir sér útsýnið

  • Helgafell, Valahnúkar, Mygludalir og Víghóll.

    Helgafell, Valahnúkar, Mygludalir og Víghóll.

  • Horft norðaustur eftir Húsfellinu

    Horft norðaustur eftir Húsfellinu

  • Helgafellið hverfur í þokunni

    Helgafellið hverfur í þokunni

  • Sigurlín, Ragnheiður, Þór, Erna, Magnúsína, Ásta Kristín, Þorbjörg og Ingvi

    Sigurlín, Ragnheiður, Þór, Erna, Magnúsína, Ásta Kristín, Þorbjörg og Ingvi

  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2021 SmugMug, Inc.
    Þorbjörg, Ásta Kristín og Erna virða fyrir sér útsýnið
    Helgafell, Valahnúkar, Mygludalir og Víghóll.
    Horft norðaustur eftir Húsfellinu