Reykjadalur og Grænsdalur
Þann 28. september fór Skundi í göngu í nágrenni Hvergerðis. Við keyrðum í gegnum austur fyrir heiði og í gegnum Hveragerði. Við lögðum bílunum við Varmá og héldum af stað við Rjúpnabrekkur. Leiðin lá eftir slóð inn Reykjadal. Við fórum inn í Klambragil og fórum að fossi innst í gilinu. Við fórum næst upp í Dalaskarð, inn í sæluhús þar og áðum. Til að labba ekki sömu slóð til baka fórum við yfir Dalaskarð í Grænsdal og út hann að bílunum við Rjúpnabrekkur. Ég fylgdi ánni en hópurinn fór upp í hlíðar Dalafells.
Alls voru þetta 10,8 kílómetrar á fjórum klukkustundum.
Read MoreAlls voru þetta 10,8 kílómetrar á fjórum klukkustundum.