gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivera
  2. Skundi

Strútsstígur - Skælingar - Sveinstindur

Skundi fór í göngu eftir Strútsstíg og Skælingum 19.-23. júlí 2009. Við hófum göngu við göngubrúnna yfir Kaldaklofskvísl við Hvanngil. Héldum fyrst upp á Hvanngilshnausa og nutum útsýnisins. VIð héldum svo suður fyrir Röðul og yfir í Kaldaklof á milli Sléttafells og Einstigsfjalls. Þar óðum við nokkrar smákvíslar sem mynda Kaldaklofskvísl. Við áttum stutta viðkomu á Slysaöldu og héldum svo yfir Mælifellssandinn og inn í Hrútagil. Þar fórum við yfir Veðurhálsins í Strútsskála. Á mánudegi héldum svo upp Skófluklifina og góndum niður í Krókagil. Við fórum svo niður í Hólmsárbotna í Strútsslaug þar sem við böðuðum okkur. Eftir að hafa snætt nesti héldum við fyrir Laugarháls upp í hlíðar Svartahnúksfjalla í Eldgjá. Þar áðum við við fallegan foss áður en við löbbuðum berfætt í mosanum við Álftavötn. Á þriðjudegi héldum við áfram meðfram Syðri-Ófæru, óðum hana einu sinni. Við dáðumst að fossum og flúðum. Í Hólaskjóli bættist ein í hópinn og héldum við nú að Nyrðri-Ófæru og fylgdum henni inn Eldgjá að Ófærufossi. Næst var haldið í hlíðar Gjátinds, en ekki upp á hann. Deginum lauk svo í skálanum í Stóragili á Skælingum. Á miðvikudegi héldum við inn Stóragil í austurátt. Upp úr gilinu fórum við og héldum að Uxatindum og fórum upp á þann austasta. Þá héldum við inn Jötnagil að Skaftá. Við óðum svo ánna fyrir mynni Hvanngils og fylgdum Skaftá að vatnamælingakofa, en þar var stefnan sett á Sveinstindaskála. Á fimmtudegi héldum upp á Sveinstind og svo niður á veg þar sem við biðum eftir rútunni.
Read More
  • Hvert skal halda? Við brúnna að Hvanngili. Við komum með rútu í gegnum Fljótshlíð. Leiðin í Skaftártungu liggur um Mælifellssand.

    Hvert skal halda? Við brúnna að Hvanngili. Við komum með rútu í gegnum Fljótshlíð. Leiðin í Skaftártungu liggur um Mælifellssand.

  • Hvanngil framundan. Ferðinni er heitið á Hvanngilshnausa hægra megin við Hvanngil, fyrir innan þá er Röðull. Vinstra megin í Hvanngili er Ófæra og Ófæruhöfði. Fyrir botni Hvanngils sést í Kaldaklofsfjöll, Skerinef?

    Hvanngil framundan. Ferðinni er heitið á Hvanngilshnausa hægra megin við Hvanngil, fyrir innan þá er Röðull. Vinstra megin í Hvanngili er Ófæra og Ófæruhöfði. Fyrir botni Hvanngils sést í Kaldaklofsfjöll, Skerinef?

  • Sléttjökull. Enta og Entujökull. Smáfjallarani og Smáfjöll upp af honum. Stórkonufell. Útigönguhöfðar. Hattafell. Tindfjallajökull. Stóra-Súla

    Sléttjökull. Enta og Entujökull. Smáfjallarani og Smáfjöll upp af honum. Stórkonufell. Útigönguhöfðar. Hattafell. Tindfjallajökull. Stóra-Súla

  • Álfhildur og Pierre

    Álfhildur og Pierre

  • Skundi á Hvanngilshnausum. Ingvi, Pierre, Amandine, Magnea, Þorbjörg, Álfhildur, Ragnheiður og Erna

    Skundi á Hvanngilshnausum. Ingvi, Pierre, Amandine, Magnea, Þorbjörg, Álfhildur, Ragnheiður og Erna

  • Horft yfir skála FÍ í Hvanngili. Stóra-Súla. Brattháls til hægri. Stóra-Grænafjall í bakgrunni.

    Horft yfir skála FÍ í Hvanngili. Stóra-Súla. Brattháls til hægri. Stóra-Grænafjall í bakgrunni.

  • Skáli FÍ í Hvanngili

    Skáli FÍ í Hvanngili

  • Á Hvanngilshnausum

    Á Hvanngilshnausum

  • Einstigsfjall framundan. Kaldaklofskvísl liðast undan því og hverfur undir Hvanngilshnausa. Sandfok á Mælifellssandi.

    Einstigsfjall framundan. Kaldaklofskvísl liðast undan því og hverfur undir Hvanngilshnausa. Sandfok á Mælifellssandi.

  • Ragnheiður féll og þurfti á skyndihjálp að halda.

    Ragnheiður féll og þurfti á skyndihjálp að halda.

  • Þorbjörg, Ragnheiður, Magnea og Amandine að vaða í Kaldaklofi. Pierre mundar myndavélina. 

Það sést rétt í Einstigsfjall vinstra megin. Þar fyrir aftan er Útigönguhöfði. Sléttafell. Kaldaklofsfjöll.

    Þorbjörg, Ragnheiður, Magnea og Amandine að vaða í Kaldaklofi. Pierre mundar myndavélina. Það sést rétt í Einstigsfjall vinstra megin. Þar fyrir aftan er Útigönguhöfði. Sléttafell. Kaldaklofsfjöll.

  • Álfhildur í Kaldaklofi

    Álfhildur í Kaldaklofi

  • Þorbjörg skolar skónna. Álfhildur á leið til hennar.

    Þorbjörg skolar skónna. Álfhildur á leið til hennar.

  • Hvert skal halda? Efni til skiltagerðar við Slysaöldu.

    Hvert skal halda? Efni til skiltagerðar við Slysaöldu.

  • Skundi kominn yfir Veðurháls á leið niður í Strútsskála.

    Skundi kominn yfir Veðurháls á leið niður í Strútsskála.

  • Mælifell

    Mælifell

  • Strútur - Meyjarstrútur

    Strútur - Meyjarstrútur

  • Heimasætan með hundinn

    Heimasætan með hundinn

  • Aðeins að klappa hundinum

    Aðeins að klappa hundinum

  • Þorbjörg, Álfhildur, Erna, Ingvi, Ragnheiður, Magnea, Pierre og Amandine fyrir utan Strútsskála. Hundinum fannst vanta ferfætling á myndina.

    Þorbjörg, Álfhildur, Erna, Ingvi, Ragnheiður, Magnea, Pierre og Amandine fyrir utan Strútsskála. Hundinum fannst vanta ferfætling á myndina.

  • Hvert skal halda? Rétt við Strútsskála

    Hvert skal halda? Rétt við Strútsskála

  • Horft niður í Krókagil og á sandfell.

    Horft niður í Krókagil og á sandfell.

  • Mælifell, Öldufell  lengra á bak við

    Mælifell, Öldufell lengra á bak við

  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2022 SmugMug, Inc.
    Þorbjörg, Álfhildur, Erna, Ingvi, Ragnheiður, Magnea, Pierre og Amandine fyrir utan Strútsskála. Hundinum fannst vanta ferfætling á myndina.
    Hvert skal halda? Rétt við Strútsskála
    Horft niður í Krókagil og á sandfell.