Straumsvík
Gönguklúbburinn nafnlausi fór og labbaði Straumsvík þriðjudaginn 21. ágúst. Fylgt var að mestu leið sem undanfararnir fóru vikuna áður. Þ.e. lagt var af stað frá Straumi og labbað að Þýskubúð. Stefnan sett á Jónsbúð og labbað framhjá Eyðikoti. Næst var labbað eftir Langabakka og framhjá Óttarstaðabæjunum. Stefnan var sett á hlaðnar tóftir Norðurfjárhúsa og þaðan að tóftarbrotum Lónakots. Næst var haldið í suður, yfir Reykjanesbraut og gamla Keflavíkurveginn að Óttarsstaðaborg, hringlaga hlaðinni fjárborg úr hraunhellum, stundum nefnd Kristrúnarborg - eftir Kristrúnu bónda á Óttarsstöðum sem hlóð borgina um 1870. Þar var áð og rætt um nöfn á klúbbinn og nafnið SKUNDI valið. Þá löbbuðum við að Smalaskálakeri sem er jarðfall og virtum fyrir okkur rústir Slunkaríkis, kofi sem reistur var 1974 af Hreini Friðfinnssyni. Undanfararnir höfðu ekki fundið Gvendarbrunn svo um leið og inn á Alfaraleið var komið var farið að svipast um eftir veglegum brunni - helst í kringum vörðurnar. Það var svo fyrir einstaka heppni að við fundum smápoll sem við sannfærðum okkur um að væri Gvendarbrunnur. Við héldum svo að Straumi aftur.
Gönguleiðin var tæpir 10 kílómetrar og gengum við hana á fjórum klukkustundum. Miklar tafir voru vegna krækiberja framan af, en eftir að yfir Reykjanesbrautina var komið tóku við bláber í miklu magni.
Read More