gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivera
  2. Skundi

Sveifluháls - Hrútagjá

Skundi gekk á Sveifluháls og að Hrútagjá laugardaginn 24. maí. Gengið var frá Vigdísarvallavegi í suðaustur upp á Hellutind. Tja, altént sagði GPS tækið að við værum á Hellutindi. Þaðan löbbuðum við í þokunni yfir á Stapatind. Stöku sinnum rofaði til og var þá hægt að sjá í Kleifarvatn fyrir neðan. Eftir að hafa stoppað aðeins á Stapatindi var tekin skyndiákvörðun um að fara beint niður í Folaldadali og yfir Norðlingaháls. Þegar niður á veg var komið var stefnan sett beint á Hrútagjá og klöngrast yfir hraunið. Hópurinn labbaði svo meðfram Hrútagjá þar sem hún skyndilega endaði. Við tók önnur gjá sem ákveðið var að fara niður í og reyndist það vera príl og smá vesen. Hópurinn dreif sig upp úr gjánni og setti stefnuna á hrauntröð sem liggur í hrauninu. Við löbbuðum eftir botni hrauntraðarinnar þar til við vorum komin út úr hrauninu. Þá löbbuðum við eftir gömlum stíg suður fyrir Sandfell og svo eftir veginum að bílnum.

Alls voru þetta 10,4 kílómetrar á fjórum og hálfum klukkutíma.
Read More
  • Sveifluháls er úr móbergi og oft á tíðum varasamur yfirferðar

    Sveifluháls er úr móbergi og oft á tíðum varasamur yfirferðar

  • Hér er horft yfir Hrútagjárdyngju og veginum er bíllinn minn

    Hér er horft yfir Hrútagjárdyngju og veginum er bíllinn minn

  • Leiðin framundan, erum á miðjum Sveifluhálsinum

    Leiðin framundan, erum á miðjum Sveifluhálsinum

  • Erna smellir af í rokinum og þokunni

    Erna smellir af í rokinum og þokunni

  • Jón og Þorbjörg

    Jón og Þorbjörg

  • Útsýnið yfir Kleifarvatn var ekki mikið

    Útsýnið yfir Kleifarvatn var ekki mikið

  • Er ekki tindur þarna bak við?

    Er ekki tindur þarna bak við?

  • Erna, Jón og Þorbjörg (efst í þokunni) á leið niður einn tindinn

    Erna, Jón og Þorbjörg (efst í þokunni) á leið niður einn tindinn

  • Untitled photo
  • Þorbjörg, Erna og Jón

    Þorbjörg, Erna og Jón

  • Þetta er leiðinn samkvæmt GPS tækinu, þó ófrýnileg sé

    Þetta er leiðinn samkvæmt GPS tækinu, þó ófrýnileg sé

  • Jón og Þorbjörg í þokunni

    Jón og Þorbjörg í þokunni

  • Þarna niður fórum við og áðum í grasbalanum

    Þarna niður fórum við og áðum í grasbalanum

  • Myndað í þokunni, Erna stendur á Stapatindi

    Myndað í þokunni, Erna stendur á Stapatindi

  • Á Stapatindi, smá æfingar til að ná réttu horni í myndsmíðinni

    Á Stapatindi, smá æfingar til að ná réttu horni í myndsmíðinni

  • Á leið niður í Folaldadali, svolítið vandasamt var að finna leið í mosanum og forðast móbergið

    Á leið niður í Folaldadali, svolítið vandasamt var að finna leið í mosanum og forðast móbergið

  • Þorbjörg og Erna leita að leið í gjánni.

    Þorbjörg og Erna leita að leið í gjánni.

  • Smá klifur

    Smá klifur

  • Jón hoppar og er í loftinu

    Jón hoppar og er í loftinu

  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2023 SmugMug, Inc.
    Erna smellir af í rokinum og þokunni
    Jón og Þorbjörg
    Útsýnið yfir Kleifarvatn var ekki mikið