Álftavötn-Strútsskáli
Þann 27. ágúst var haldið að stað frá Álftavatnaskála snemma morguns. Leiðin lá með Syðri-Ófæru og yfir Hraunbrú, sem er steinbrú sem labba má yfir. Svo var haldið fyrir dalverpi er heitir Álftavatnskrókur. Rétt fyrir neðan Eldfoss þurfti að vaða yfir ánna. Því næst var haldið yfir Laugarháls og niður að Hólmsárbotnum. Þar var gott að skella sér í Strútslaug og slappa aðeins af. Einnig var rölt upp á nálægan hól til að fá betra útsýni yfir botnana. Svo var rölt af stað og gengið að Strútsskála. Strútsskáli er mjög flottur og gaman að vera þar.
Leiðin var 23,2 kílómetrar og var hún þrömmuð á 8 klukkustundum - reyndar ágætis stopp í Strútslaug.
Read MoreLeiðin var 23,2 kílómetrar og var hún þrömmuð á 8 klukkustundum - reyndar ágætis stopp í Strútslaug.