Fagradalsfjall 16. september 2012
Útivist hélt í dagsferð á Fagradalsfjall í leit að flugvélaflökum. Gangan hófst með viðkomu á Drykkjarsteini og svo var haldið að fyrsta flakinu, þar fannst ýmislegt brak og flugvélahreyfill úr Martin PBM1 Mariner sem fórst 1941. Þá var haldið norður á Langhól þar sem hópurinn fann brak úr breskum flugbát, Short Sunderland sem fórst 1942. Við héldum að Kastinu þar sem B-24 flugvél fórst 1943. Við héldum svo yfir Borgarhraun að Suðustrandarvegi þar sem rútan beið okkar.
Read More