Skjaldbreiður 30. september 2012
Sunnudaginn 30. september 2012 gekk Útivist á Skjaldbreiði. Þegar gangan hófst var mikil þoka en af og til mátti sjá í fjallstoppa birtast upp úr þokunni og var það flott sýn. Við gengum upp að norðanverðu, frá línuvegi sem liggur yfir á Haukadalsheiði, fyrst eftir Skjaldbreiðarvegi en svo fylgdum við vörðum upp að gígnum vestanverðum. Við gengum hálfhring eftir gígnum áður en við héldum niður í norðausturátt að Tjaldfelli, þar sem Sæmundur rútubílstjóri beið okkar.
Read More