gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivist
  2. Utivist 2007-2011

Grímannsfell

Á Grímannsfellið fór ég með Útivist sunnudaginn 28. október. Við hófum gönguna við Gljúfrastein og skoðuðum sundlaugina hans Halldórs. Þaðan löbbuðum við eftir ánni upp að Helgufossi. Þar fór ég í maí með Ferðafélaginu í morgungöngu. Við héldum svo áfram upp með ánni - kíktum á rústir að Bringum og leituðum svo að steinum til að stikla yfir ánna. Þegar yfir var komið fundum við okkur ágætist stað til matast. Svo var stefnan sett beint upp á Stórhól. Uppi fórum á mili nokkurra hóla svo það væri nú tryggt að við gætum krossað í Bókina. Næst fórum við á Hjálm og svo á Kollhól og áðum þar. Eftir að hafa matast héldum við eilítið til baka og svo niður eftir Torfdalshrygg að Borgarvatni. Þar var fararstjórinn búinn að vara okkur við illfærri girðingu og áttum við von á miklu ævintýri við að komast yfir eða undir hana. Þegar á reyndi lá girðingin ógurlega á jörðinni og var lítið verk að komast yfir hana. Við fórum yfir á þar sem áður var myllustífla fyrir Álafossverksmiðjuna. Svo var stefnan sett í suður að vegarslóða þar sem rútan náði í okkur.
Read More
  • Sundlaug Kiljans

    Sundlaug Kiljans

  • Gengið eftir ánni að Helgufossi

    Gengið eftir ánni að Helgufossi

  • Gljúfrasteinn

    Gljúfrasteinn

  • Untitled photo
  • Helgufoss framundan

    Helgufoss framundan

  • Hópurinn virðir fyrir sér umhverfið

    Hópurinn virðir fyrir sér umhverfið

  • Helgufoss

    Helgufoss

  • Helgufoss

    Helgufoss

  • Helgufoss

    Helgufoss

  • Þessi foss er eilítið fyrir ofan Helgufoss

    Þessi foss er eilítið fyrir ofan Helgufoss

  • Hér voru bæjarrústir, Bringur

    Hér voru bæjarrústir, Bringur

  • Hér viljum við upp

    Hér viljum við upp

  • Fyrst þurfi að stikla yfir ánna

    Fyrst þurfi að stikla yfir ánna

  • Móskarðshnúkar

    Móskarðshnúkar

  • Skálafellið, hið fallega skv. KR-ingum

    Skálafellið, hið fallega skv. KR-ingum

  • Esjan, Hátindur

    Esjan, Hátindur

  • Grétar fagnar tindi

    Grétar fagnar tindi

  • Staðið á höndum

    Staðið á höndum

  • Virkjanir í fjarska

    Virkjanir í fjarska

  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2023 SmugMug, Inc.
    DSC_0108_edited-1.jpg
    Helgufoss framundan
    Hópurinn virðir fyrir sér umhverfið