Hátindur í Esju
Sunnudaginn 7. október fór ég með Útivist upp á Hátind í Esju, yfir Skálatind og niður að Meðalfellsvatni í Kjós. Veðrið var fínt, reyndar þoka þegar við vorum upp á Hátindi, en að öðru leiti flott. Við fórum yfir mýri á leiðinni að fjallsrótum og var nokkur bleyta í henni. Leiðin upp var fín, smá skriða á kafla en ekkert hættulegt.
Leiðin var 13,4 kílómetrar sem við löbbuðum á sex klukkustundum. Hækkun var um 830 metrar.
Read MoreLeiðin var 13,4 kílómetrar sem við löbbuðum á sex klukkustundum. Hækkun var um 830 metrar.