Högnhöfði
Sunnudaginn 16. september fór ég með Útivist á Högnhöfða. Þegar rútan kom á Laugarvatn var ljóst að snjóað hafði meira en fararstjórinn hugði. Ferðinni hafði verið heitið upp úr Miðdal eftir Hlöðuvallavegi inn á Rótarsand og byrja gönguna nálægt Stokki. Ekki var hægt að fara á rútunni upp brekkuna og því ákveðið að hefja gönguna í Miðhúsaskógi. Ákveðið var að labba upp í Brúarárskörð. Við stoppuðum á leiðinni við Kálfárfoss. Upp í Brúarárskörðum mátti sjá lækina spretta fram úr berginu. Við vorum náttúrlega næstum því komin alla leið og héldum áfram upp á Högnhöfða. Útsýnið þaðan er gott. Við fórum svo sömu leið til baka. Grétar tók hópmynd á Högnhöfða.
Ganga var 25,6 kílómetrar sem við gengum á tæpum tíu tímum, hækkunin var 850 metrar. Vegalengd og tími voru í efri mörkum áætlunar, en hækkun tvöfalt hærri - góður bónus þar.
Read More