gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivist
  2. Utivist 2007-2011

Hrúðurkarlar og Litla-Björnsfell

Þann 2. september fór ég með Útivist á Hrúðurkarla og Litla-Björnsfell. Gangan hófst við Kerlingu og var labbað norður fyrir hana og að Hrúðurkörlum. Rétt áður en ganga upp á einn Hrúðurkarlinn átti að hefjast varð einn göngumaður fyrir því óláni að hrufla sig á fætinum og var stoppað til að gera að sárum hans. Við hin fengum okkur kaffi á meðan. Að kaffi loknu var farið upp á Hrúðurkarl og útsýnisins notið og myndir teknar. Næst var stefnan sett á Litla-Björnsfell. Gangan upp gekk ágætlega, en smá klifur fyrir þá sem vildu komast upp á hæsta hólinn á fellinu. Uppi á fellinu var tekið seinna kaffi. Upphaflega hafði átt að fara suður að línuvegi og láta rútuna taka okkur upp þar, en það var ákveðið að labba suður með Hrúðurkörlum í staðinn. Veðrið var ágætt til göngu en farið að bera á smá úða í göngulok. Göngleiðin var 14,6 kílómetrar og var farin á tæpum sex klukkustundum.
Read More
  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2022 SmugMug, Inc.
    Grétar pósaði uppi á tindinum
    DSC_0096_edited-1.jpg