Ljósufjöll
Dagsferðin 12. ágúst hjá Útivist var á Ljósufjöll. Veðrið var fínt, nema það var mikil þoka á toppunum. Gangan hófst við Borg og var farið yfir Snæfellsnesið niður í Álftafjörð. Við fórum upp á 3 toppa, Grána (1001), Bleik (1039) og Miðtind (1063). Leiðin upp var að mestu leiti í góðu lagi, það var labbað töluvert á grjóti sem getur verið leiðinlegt. Á Miðtindi prófaði ég danska pásu, "danish break" - þ.e. ég datt á rassinn, tindurinn er mjög laus í sér og fyllsta ástæða til að fara varlega. Smá klifur var á leiðinn niður Miðtind og á leiðinni niður í Álftafjörð var snjór sem þurfti að fara yfir. Margir flottir fossar voru á leiðinni, bæði sunnan og norðan meginn.
Við löbbuðum 16,7 kílómetra á rúmlega 8 klukkustundum. Hækkunin var rétt um 1.000 metrar. Fararstjóri var María Berglind Þráinsdóttir.
Read MoreVið löbbuðum 16,7 kílómetra á rúmlega 8 klukkustundum. Hækkunin var rétt um 1.000 metrar. Fararstjóri var María Berglind Þráinsdóttir.