Strútsstígur 6.-9. ágúst
Átta manna hópur auk fararstjóra hélt af stað úr Reykjavík 6. ágúst. Dagana áður var grenjandi rigning. Þegar í Hólaskjól var komið var ljóst að ekki yrði unnt að vaða Syðri-Ófæru á leið í Álftavötn vegna rigningar. Var því afráðið að láta rútuna skutla hópnum vel áleiðis. Hópurinn fór úr rútunni við hraunbrúnna yfir Syðri-Ófæruna og gekk að Álftavatnaskála. Mikið vatn var í ánni sem flæddi yfir hraunbrúnna. Á öðrum degi var gengið í rigningu frá Álftavatnaskála í Strútsskála. Allar ár á leiðinni voru í ham og þar sem áður var hægt að stikla yfir þurfti að vaða. Hólmsá við Strútslaug var í ham og urðu menn misblautir eftir baráttuna við ánna. Strútsskáli var sem himnaríki og æðislegt að komast úr blautum fötum í hlýum skálanum. Á þriðja degi var haldið frá Strútsskála í Hvanngil. Komið var við á Slysaöldu og svo vaðið yfi ár og læki í Kaldklofi. Í Hvanngili á leið að skálanum var komið við í Gamlabóli, gömlu skýli. Á fjórða degi var farinn hringur í Hvanngilskrók á meðan hópurinn beið eftir rútunni.
Myndir frá Jónasi
Myndir frá Frey og Kristínu
Myndir frá Guðmundi og Sigríði
Read More