gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivist
  2. Utivist 2007-2011

Strútsstígur júní 2009

Ég fór sem fararstjóri á Strútstígnum fyrir Útivist í lok júní. Farþegarnir voru 14 og með mér var aðstoðarfararstjórinn Jón Karl. Við hófum göngu í Hólaskjóli og leiðin lá í Álftavötn meðfram Syðri-Ófæru. Í fallegu gili, eins konar hliði á leiðinni, óðum við Syðri-Ófæru. Syðri-Ófæra reyndist vera nokkuð vatnsmikil og breiðari en áður. Það ringdi smávegis á okkur og það var gott að koma í heitan skálann, en Hákon trússari hafði kveikt upp í Sóló-vélinni fyrir okkur. Við gengum 6,6 km á þremur og hálfri klukkustund.

Á öðrum degi gengum við frá Álftavötnum að Strútsskála. Fyrst gengum sunnan við Syðri-Ófæru, berfætt í mjúkum mosa og óðum tvær, þrjár sprænur. Þegar við komum að Eldgjá fengum við okkur nesti og reimuðum á okkur skónna. Við gengum svo meðfram norðurhlíðum Svartahnúksfjalla niður að Syðri-Ófæru þar sem hún rennur úr Muggudal yfir í Ófærudal. Þar tókum við kaffipásu og héldum svo áfram, yfir Laugarháls og niður í Hólmsárbotna. Við fórum að Strútslaug og böðuðum okkur þar. Við héldum svo suður Hólmsárbotna í þoku og litlu skyggni, fórum yfir Strútsgil, norður fyrir Strút og að Strútsskála. Aftur var gott að koma í heitan og hlýjan skála. Þar var grillað og slakað á eftir langan dag. Við gengum 22,7 km á ellefu og hálfum tíma.

Á þriðja degi héldum við yfir Veðurháls niður í Hrútagil og suður fyrir Mataröldu og Skiptingaöldu upp á Slysaöldu. Þar var farið yfir sögu Þorláks frá Gröf sem varð þar úti ásamt þremur samferðarmönnum sínum. Við óðum svo yfir Kaldaklofskvíslar og fórum milli Einstigsfjalls og Sléttafells inn í lítinn dal. Þar héldum við fyrir Röðul yfir í Hvanngil. Við skála FÍ í Hvanngili beið eftir okkur rúta frá Fjallabaki sem skutlaði okkur yfir í Álftavatn þar sem við gistum í skála FÍ. Þar grilluðum við og höfðum það gott. Við gengum 16 km á átta klukkustundum.

Á fjórða degi fórum við í smá morgungöngu á meðan beðið var eftir rútunni sem skutlaði okkur í bæinn.
Read More
  • Fyllt á vatnsbrúsa

    Fyllt á vatnsbrúsa

  • Við vaðið yfir Syðri-Ófæru er þessi fallegi foss

    Við vaðið yfir Syðri-Ófæru er þessi fallegi foss

  • Við vaðið yfir Syðri-Ófæru

    Við vaðið yfir Syðri-Ófæru

  • Eftir vaðið borðuðum við nesti í rigningunni

    Eftir vaðið borðuðum við nesti í rigningunni

  • Hópurinn á fullri ferð að Álftavatnaskála

    Hópurinn á fullri ferð að Álftavatnaskála

  • Við Álftavötn

    Við Álftavötn

  • Hraunbrúin

    Hraunbrúin

  • Hraunbrúin

    Hraunbrúin

  • Horft í átt að Eldgjá þar sem Syðri-Ófæra fer í gegn

    Horft í átt að Eldgjá þar sem Syðri-Ófæra fer í gegn

  • Feðgin vaða

    Feðgin vaða

  • Eldgjá framundan

    Eldgjá framundan

  • Hópurinn fær sér nesti

    Hópurinn fær sér nesti

  • Jón Karl útskýrir plöntukeppnina

    Jón Karl útskýrir plöntukeppnina

  • Valið í lið

    Valið í lið

  • Liðaval

    Liðaval

  • Untitled photo
  • Horft til baka í þokuna

    Horft til baka í þokuna

  • Þessi snjóskafl var léttur niðurferðar

    Þessi snjóskafl var léttur niðurferðar

  • Untitled photo
  • Hælarnir niður - ekkert mál

    Hælarnir niður - ekkert mál

  • Untitled photo
  • Sum renndu sér

    Sum renndu sér

  • Smá freestyle

    Smá freestyle

  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2021 SmugMug, Inc.
    Horft í átt að Eldgjá þar sem Syðri-Ófæra fer í gegn
    Feðgin vaða
    Eldgjá framundan