gemlingur

  • Home
  • Browse
  • Search
  1. Utivist
  2. Utivist 2007-2011

Strútsstígur júlí 2008

Ég fór Strútsstíginn sem fararstjóri fyrir Útivist dagana 3.-6. júlí. Á fyrsta degi var gengið frá Hólaskjóli að Álftavötnum. Við fengum þau skilaboð frá Hákoni trússari að mikið væri í Syðri-Ófæru og fórum upp í Axlir og forðuðust hið hefðbundna vað. Í staðinn átti að fara yfir hraunbrúnna rétt við skálann. Þegar þangað var komið var brúin á kafi og brá Hákon á það ráð að ferja okkur yfir ánna á jeppanum sínum, upplifðum við það hvernig er að vera sardína í dós. Hákon fór með okkur í tveimur ferðum, þ.e. allt trúss, dagspoka og 13 göngumenn. Gekk þetta allt ágætlega en gangan lengdist þó töluvert, varð tæpir 10 kílómetrar í stað 6-7. Þegar í Álftavötn var komið skálinn kynntur og kvöldmatur eldaður. Svo var farið í smá kvöldgöngu og leitað að óðinshönum og öðrum fuglum.
Read More
  • Horft yfir vaðið á Syðri-Ófæru. Hákon trússari lagði til að farið yrði upp í Axlir og vaðið forðast.

    Horft yfir vaðið á Syðri-Ófæru. Hákon trússari lagði til að farið yrði upp í Axlir og vaðið forðast.

  • Hópurinn kominn niður á láglendið - stefnan sett á hraunbrúnna yfir Syðri-Ófæru

    Hópurinn kominn niður á láglendið - stefnan sett á hraunbrúnna yfir Syðri-Ófæru

  • Hákon brá á það ráð að ferja okkur yfir Syðri-Ófæru, sem var í ham. Áin flæddi uppá húdd.

    Hákon brá á það ráð að ferja okkur yfir Syðri-Ófæru, sem var í ham. Áin flæddi uppá húdd.

  • Nýr dagur og loksins hægt að vaða. Hópurinn kominn í Álftavatnakróka og veður eina sprænuna sem sameinast Syðri-Ófæru. Bláfjöll í bakgrunni.

    Nýr dagur og loksins hægt að vaða. Hópurinn kominn í Álftavatnakróka og veður eina sprænuna sem sameinast Syðri-Ófæru. Bláfjöll í bakgrunni.

  • Komin upp að vaði yfir Syðri-Ófæru við Eldgjá.

    Komin upp að vaði yfir Syðri-Ófæru við Eldgjá.

  • Skóleitarflokkurinn snýr til baka

    Skóleitarflokkurinn snýr til baka

  • Áð á bakka Syðri-Ófæru

    Áð á bakka Syðri-Ófæru

  • Foss í Syðri-Ófæru

    Foss í Syðri-Ófæru

  • Oft voru snjóskaflar á leið okkur milli Álftavatna og Strútsskála

    Oft voru snjóskaflar á leið okkur milli Álftavatna og Strútsskála

  • Göngumenn velta vöngum yfir skrítnum dúk

    Göngumenn velta vöngum yfir skrítnum dúk

  • Untitled photo
  • Untitled photo
  • Hólmsárbotnar blasa við.

    Hólmsárbotnar blasa við.

  • Á þriðja degi var bjart yfir og Mælifell blasti við frá Strútsskála

    Á þriðja degi var bjart yfir og Mælifell blasti við frá Strútsskála

  • Strútsskáli í allri sinni dýrð. Gönguleiðin út á Mælifellssand upp frá skálanum.

    Strútsskáli í allri sinni dýrð. Gönguleiðin út á Mælifellssand upp frá skálanum.

  • Ein ég reika um eyðisand - á leið yfir Mælifellssand

    Ein ég reika um eyðisand - á leið yfir Mælifellssand

  • Skýin voru flott í Hvanngili

    Skýin voru flott í Hvanngili

  • Það var farið í smá kvöldgöngu þegar komið var í Hvanngil. Helga og Valdi virða sér fyrir foss

    Það var farið í smá kvöldgöngu þegar komið var í Hvanngil. Helga og Valdi virða sér fyrir foss

  • Helga komin upp í kletta og unir sér vel

    Helga komin upp í kletta og unir sér vel

  • Untitled photo
  • Helga skríður inn í Gamla-Ból, gamalt gangnamannaskýli

    Helga skríður inn í Gamla-Ból, gamalt gangnamannaskýli

  • Nóg er plássið í Gamla-Bóli

    Nóg er plássið í Gamla-Bóli

  • Valda leist ekkert á skýlið

    Valda leist ekkert á skýlið

  • Photo Sharing
  • About SmugMug
  • Browse Photos
  • Prints & Gifts
  • Terms
  • Privacy
  • Contact
  • Owner Log In
© 2023 SmugMug, Inc.
    Skóleitarflokkurinn snýr til baka
    Áð á bakka Syðri-Ófæru
    Foss í Syðri-Ófæru