Álftanes
Útivistarræktin fór hring á Álftanesinu 5. september. Við löbbuðum kringum Bessastaðatjörn, fengum okkur kaffi á Skansinum og litum inn í Bessastaðakirkju. Á bakaleiðinni var ákveðið að stytta sér leið og farin leið sem Álftnesingar fara aldrei og ekki að ástæðulausu. Við þurftum að stökkva yfir nokkra skurði og mér tókst að fara á bólakaf með annann fótinn í einu stökkinu, en enginn er verri þótt hann vökni.
Við gengum 6,6 kílómetra á tæpum tveimur tímum.
Read MoreVið gengum 6,6 kílómetra á tæpum tveimur tímum.