Helgafell í Hafnarfirði
Miðvikudaginn 6. júní fór ég með útivistarræktinni í göngu. Upphaflega átti að fara upp á Hátind við Þingvallavatn. Vegna veðurs var ákveðið að hætta við og fara þess í stað uppá Helgafell í Hafnarfirði. Þar var veðrið betra, rok og rigning. Þetta var engu síður hin besta æfing.
Þetta var í annað skiptið sem ég skrölti upp á Helgafell, fyrra skiptið var í morgungöngu með Ferðafélagi Íslands. Leiðin að þessu sinni var aðeins öðruvísi, valin meiri bratti og eflaust styttri leið.
Þetta voru 5 kílómetrar og göngutíminn var tæpar 2 klukkustundir. Hækkun var 250 metrar.
Read More