Litla-Kóngsfell
Miðvikudaginn 30. júlí fór Útivistarræktin á Litla-Kóngsfell. Við lögðum bílunum rétt hjá slysavarnarskýli við Bláfjallaveg. Fyrst héldum við upp Grindarskörð og settum svo stefnuna á Litla-Kóngsfell. Við fórum þar upp og yfir það og fundum okkur smá kaffilaut. Eftir kaffidrykkju var haldið að stað og farið norður fyrir Stóra-Bolla niður í Kristjánsdali að bílunum.
Við gengum um 10 kílómetra á 3 klukkustundum.
Read MoreVið gengum um 10 kílómetra á 3 klukkustundum.